Fagleg símaþjónusta fyrir fyrirtæki og félagasamtök

Heildarþjónusta í úthringingum

Hvort sem markmiðið er sala, fjáröflun eða eftirfylgni tökum við verkefnið alla leið, með þjálfuðu starfsfólki og árangur að leiðarljósi.

Símasala

Okkar sérgrein. Við náum sambandi við mögulega viðskiptavini og hjálpum þér að skapa fleiri sölutækifæri.

Fundabókun

Við bókum fundi fyrir sölufólkið þitt svo það geti einbeitt sér að sölunni og samskiptum við viðskiptavini.

Fjáröflun

Markviss og persónuleg fjáröflun fyrir félög, samtök og góð málefni.

Innheimta

Vinsamleg og fagleg innheimta með áherslu á góð samskipti við viðskiptavini þína.

Eftirfylgni

Við fylgjum markpósti og auglýsingaherferðum eftir á markvissan og faglegan hátt.

Sérsniðin verkefni

Segðu okkur frá verkefninu og við finnum leið sem hentar.

Fá tilboð

Til hvers er hægt að nýta úthringingar?

Fyrirtæki og félög nýta þjónustu okkar á fjölbreyttan hátt:

  • Áskriftarsölu, t.d. á tímaritum, happdrættismiðum og fleiru
  • Kynningu á vörum og þjónustu
  • Fjáröflun fyrir félög og góð málefni
  • Uppfærslu og hreinsun tengiliðalista
  • Öflun nýrra viðskiptavina
  • Eftirfylgni með markpósti og herferðum

Af hverju að útvista úthringingum?

  • Markaðsaðgerðum er fylgt eftir á markvissan og faglegan hátt
  • Aðgangur að þjálfuðu sölufólki
  • Sveigjanleiki í umfangi verkefna
  • Betra þjónustustig við viðskiptavini
  • Miðlæg gagnastýring og skýr yfirsýn

Hafðu samband

Fáðu tilboð og upplýsingar sniðnar að þínu verkefni.