Hjá Símstöðinni ehf fá allir sömu laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni, aldri, menntun og starfsreynslu.
Símstöðin ehf leggur áherslu á jafnrétti, jöfn laun og jöfn tækifæri, og að byggja upp vinnustað þar sem öllum líður vel. Jafnréttisstefnan uppfyllir kröfur laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Við ákvörðun launa skal tryggja að einstaklingum sé ekki mismunað eftir kynferði. Konum og körlum skulu greidd jöfn laun og njóta sömu kjara fyrir sömu og jafnverðmæt störf. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir konur og karla, og þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun feli ekki í sér kynjamismunun.
Við ráðningar er tryggt að umsóknir um störf séu opnar jafnt körlum og konum. Öll störf eru auglýst opinberlega og öllum umsóknum er tekið vel.
Símstöðin ehf leggur áherslu á að starfsmenn geti samræmt starfsskyldur sínar og ábyrgð gagnvart fjölskyldu. Stjórnendum ber að styðja við starfsmenn þegar þeir koma til vinnu eftir foreldra- og fæðingarorlof eða fjarveru vegna fjölskylduaðstæðna. Starfsmenn njóti ákveðins sveigjanleika í störfum sínum eftir því sem við verður komið.
Einelti, kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi er ekki liðið hjá Símstöðinni ehf. Starfsmönnum ber að temja sér kurteisi og háttvísi í framkomu og sýna hver öðrum tilhlýðilega virðingu og jákvætt viðmót. Allir á vinnustaðnum leggja sitt af mörkum til að fyrirbyggja neikvæða hegðun og stuðla að góðum samskiptum, starfsánægju og öruggu umhverfi. Stjórnendum ber að sýna gott fordæmi og taka á árekstrum og vandamálum sem upp koma og leiða þau til lykta í samvinnu við hlutaðeigandi.
Jafnréttisstefnan uppfyllir kröfur laga nr. 150/2020 um gerð jafnréttisáætlunar og framkvæmdaáætlunar. Samþykkt fyrir hönd Símstöðvarinnar ehf.